Meirihluti andvígur ESB-aðild 25. júní 2004 00:01
Meirihluti þeirra sem afstöðu tóku í nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins er á móti því að Íslendingar sæki um aðild að Evrópusambandinu. Rúmlega einn af hverjum þremur hefur þó ekki gert upp hug sinn varðandi umsókn um aðild. Af þeim sem afstöðu tóku sögðust 55 prósent andvíg umsókn um aðild að Evrópusambandinu meðan 45 prósent kváðust fylgjandi umsókn. Tæplega þrír af hverjum fimm tóku afstöðu, rúmlega 35 prósent sögðust óákveðin og tæp sjö prósent neituðu að svara. "Þessi niðurstaða undirstrikar að meðal þjóðarinnar er greinilega mjög sterkt fylgi við umsókn um aðild að Evrópusambandinu þó svo að það hafi á stundum verið meira," segir Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar. "Þetta endurspeglar að fólk er æ betur að gera sér grein fyrir því að hagsmunum okkar yrði illa borgið innan ESB;" segir Einar Kristinn Guðfinnsson, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins. Nokkur munur reyndist á afstöðu kynjanna gagnvart umsókn um aðild. Þær konur sem tóku afstöðu í skoðanakönnun blaðsins skiptust nær alveg í tvo jafnstóra hópa, fylgjandi og andvígan umsókn um aðild. Andstaða við umsókn um aðild að sambandinu mældist umtalsvert meiri meðal karla en um sextíu af hundraði þeirra sem afstöðu tóku kváðust andvígir umsókn um aðild. Þá mældist andstaða við aðild mun meiri á landsbyggðinni en í þéttbýli. Sextíu prósent íbúa landsbyggðarinnar kváðust andvíg umsókn um aðild meðan aðeins rétt rúmur helmingur íbúa þéttbýlis lýstu sömu afstöðu. Hringt var í 800 manns og skiptist úrtakið jafnt milli kynja og hlutfallslega milli kjördæma. Spurt var: Ertu fylgjandi eða andvígur því að Íslendingar sæki um aðild að Evrópusambandinu.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Fundu lík karlmanns í Reynisfjalli Innlent Frambjóðandi Trump lýsti sér sem „svörtum nasista“ á klámsíðu Erlent Sýknaður af ákæru um manndráp af gáleysi á Akureyri Innlent Kona á níræðisaldri sá björninn í þriggja metra fjarlægð Innlent Ákærður fyrir að stinga lækni í kvöldgöngu Innlent Áhyggjuefni að innri landamærin séu ekki betur tryggð Innlent „Kerfið er algjörlega að bregðast fólkinu“ Innlent Rafrettukóngur og eigandi Drekans sakaðir um 740 milljóna brot Innlent Reyndist ekki faðir stúlknanna Innlent Nafn mannsins sem lést í vinnuslysi í Árborg Innlent Fleiri fréttir Fundu lík karlmanns í Reynisfjalli Sýknaður af ákæru um manndráp af gáleysi á Akureyri Ákærður fyrir að stinga lækni í kvöldgöngu „Kerfið er algjörlega að bregðast fólkinu“ Vinnuslys töluvert tíðari á Íslandi en í Noregi Áhyggjuefni að innri landamærin séu ekki betur tryggð Dæmi um að fólk hafi fallið frá á meðan beðið er eftir NPA-þjónustu Kona á níræðisaldri sá björninn í þriggja metra fjarlægð Brynjar vill herða upp á mannréttindahugtakinu Hvítabjörninn felldur: Forðaði sér inn og sendi skilaboð á dóttur sína Útilokar ekki að snúa sér að öðrum verkefnum Senda vopnaða menn á svæðið Tilkynnt um ísbjörn og þyrla gæslunnar ræst út Óska eftir myndefni af Krýsuvíkurvegi Rafrettukóngur og eigandi Drekans sakaðir um 740 milljóna brot Nafn mannsins sem lést í vinnuslysi í Árborg „Fatlaða fólkið verður fyrir miskanum“ Hart tekist á um netaveiði í Ölfusá Reyndist ekki faðir stúlknanna Boða til kyrrðarstundar því íslenskt samfélag standi á krossgötum Engar ábendingar borist þrátt fyrir ákall Ríki og sveitarfélög benda á hvort annað varðandi NPA Útlendingum á Íslandi fjölgar hratt Brynjar snýr sér að mannréttindamálum Almenn ánægja með nýtt útlit Alþingis Brynjar segir af sér Forsætisráðherra mætir fyrstur manna í Samtalið Sjálfsagt að skoða að semja við önnur ríki um að hýsa erlenda fanga Benedikt Sveinsson er látinn Endalaus þrautaganga Haraldar eftir svörum Sjá meira