Þarf fleiri en kusu Ólaf Ragnar 29. júní 2004 00:01
Fleiri þurfa að kjósa gegn fjölmiðlalögunum í þjóðaratkvæðagreiðslu til að fella lögin úr gildi en kusu Ólaf Ragnar Grímsson forseta lýðveldisins þriðja kjörtímabilið í röð, verði þess krafist að minnst 44% atkvæðabærra manna synji lögunum. Starfshópur ríkisstjórnarinnar um tilhögun þjóðaratkvæðagreiðslu telur að taka megi upp „hóflega og málefnalega lágmarksþátttöku í þjóðaratkvæðagreiðslunni“, einsog það er orðað. Síðan eru nefndar hugmyndir um að ekki færri en 25-44% atkvæðabærra manna verði að synja lögunum til að fella þau úr gildi. En hvað þýðir þetta í atkvæðum og prósentum af kjörskrá? Ekki liggur fyrir hvenær atkvæðagreiðslan verður og því ekki heldur hve margir verða nákvæmlega á kjörskrá. Þeir verða þó líklega um 213.500. Ef við miðum við að minnst 44% atkvæðabærra manna þurfi til synja lögunum, einsog bæði fjármálaráðherra og dómsmálaráðherra hafa tekið undir, þýðir þetta að minnst 94 þúsund kjósendur þurfa að kjósa gegn fjölmiðlalögunum, og gildir þá einu hve margir koma á kjörstað. Ólafur Ragnar Grímsson var endurkjörinn forseti Íslands um helgina með miklum yfirburðum, hvernig svo sem menn túlka þær niðurstöður. Hann hlaut 86% af gildum atkvæðum en 67% af öllum greiddum atkvæðum. 90.662 kusu Ólaf Ragnar eða nokkuð færri en þarf til að synja fjölmiðlalögunum, ef áðurnefnt skilyrði um 44% atkvæðabærra manna verður að veruleika. Verði kjörsóknin meiri, t.d. 75%, þurfa 59% þeirra sem koma á kjörstað að kjósa gegn fjölmiðlalögunum til að þau falli úr gildi. Þetta hlutfall lækkar svo eftir því sem kjörsókn verður meiri, en þó aldrei þannig að einfaldur meirihluti ráði líkt og þekkist í þjóðaratkvæðagreiðslum í flestum Evrópulöndum.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Fundu lík karlmanns í Reynisfjalli Innlent Frambjóðandi Trump lýsti sér sem „svörtum nasista“ á klámsíðu Erlent Fjórir í bílnum en enginn við stýrið Innlent Sýknaður af ákæru um manndráp af gáleysi á Akureyri Innlent Kona á níræðisaldri sá björninn í þriggja metra fjarlægð Innlent Ákærður fyrir að stinga lækni í kvöldgöngu Innlent Yazan afar létt að vera ekki vísað frá landi Innlent Ísraelar gera umfangsmiklar loftárásir á skotmörk í Líbanon Erlent Áhyggjuefni að innri landamærin séu ekki betur tryggð Innlent „Kerfið er algjörlega að bregðast fólkinu“ Innlent Fleiri fréttir Yazan afar létt að vera ekki vísað frá landi Fjórir í bílnum en enginn við stýrið Fundu lík karlmanns í Reynisfjalli Sýknaður af ákæru um manndráp af gáleysi á Akureyri Ákærður fyrir að stinga lækni í kvöldgöngu „Kerfið er algjörlega að bregðast fólkinu“ Vinnuslys töluvert tíðari á Íslandi en í Noregi Áhyggjuefni að innri landamærin séu ekki betur tryggð Dæmi um að fólk hafi fallið frá á meðan beðið er eftir NPA-þjónustu Kona á níræðisaldri sá björninn í þriggja metra fjarlægð Brynjar vill herða upp á mannréttindahugtakinu Hvítabjörninn felldur: Forðaði sér inn og sendi skilaboð á dóttur sína Útilokar ekki að snúa sér að öðrum verkefnum Senda vopnaða menn á svæðið Tilkynnt um ísbjörn og þyrla gæslunnar ræst út Óska eftir myndefni af Krýsuvíkurvegi Rafrettukóngur og eigandi Drekans sakaðir um 740 milljóna brot Nafn mannsins sem lést í vinnuslysi í Árborg „Fatlaða fólkið verður fyrir miskanum“ Hart tekist á um netaveiði í Ölfusá Reyndist ekki faðir stúlknanna Boða til kyrrðarstundar því íslenskt samfélag standi á krossgötum Engar ábendingar borist þrátt fyrir ákall Ríki og sveitarfélög benda á hvort annað varðandi NPA Útlendingum á Íslandi fjölgar hratt Brynjar snýr sér að mannréttindamálum Almenn ánægja með nýtt útlit Alþingis Brynjar segir af sér Forsætisráðherra mætir fyrstur manna í Samtalið Sjálfsagt að skoða að semja við önnur ríki um að hýsa erlenda fanga Sjá meira