Líflausasti dagurinn í tvö ár 8. júlí 2004 00:01
Gærdagurinn var líflausasti dagur á gjaldeyrismarkaði í tæp tvö ár eða síðan 28. ágúst 2002. Engin viðskipti voru gerð á millibankamarkaði með gjaldeyri ef frá eru talin ein viðskipti Seðlabankans um morguninn sem voru liður í reglulegum gjaldeyriskaupum bankans. Þetta kemur fram í „Morgunkorni“ Íslandsbanka. Kyrrstaðan er sögð vera í takti við þróun síðustu mánaða þar sem umtalsvert hefur dregið úr veltu á gjaldeyrismarkaðinum. Þannig hefur meðalveltan verið 3,4 milljarða króna á dag það sem af er ári en á sama tímabili í fyrra var hún 4,8 milljarða kr. Veltan það sem af er ári hefur því verið rétt ríflega tveir þriðju hlutar þess sem hún var á sama tímabili í fyrra. Þessu til viðbótar hefur flökt krónunnar verið umtalsvert minna það sem af er þessu ári samanborið við árið í fyrra. Reyndar hefur flökt krónunnar ekki mælst jafn lítið yfir jafn langan tíma frá því að krónan var sett á flot snemma árs 2001. Gengi krónunnar hefur verið að sveiflast á fremur þröngu bili og hefur á þann mælikvarða aukinn stöðugleiki einkennt gengisþróunina. Þetta er af hinu góða og til þess fallið að að skapa innlendu efnahagslífi hagstæðari skilyrði vaxtar.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Viðskipti innlent Fréttamaður missti af strætónum til baka Neytendur Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Viðskipti innlent Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag Viðskipti innlent Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Atvinnulíf 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Viðskipti innlent „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Viðskipti innlent Gapti þegar hún sá heimilisbókhaldið hjá Röggu nagla Neytendur Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Viðskipti innlent Klíníkin sótti 300 milljónir króna Viðskipti innlent Fleiri fréttir Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Sjá meira