Innlent

VG á Akureyri lýsir vanþóknun

Vinstrihreyfingin - grænt framboð á Akureyri og nágrenni hélt félagsfund á Akureyri í gær þar sem m.a. voru til umræðu fjölmiðlalögin svokölluðu og framganga ríkisstjórnarflokkanna í því máli. Í fréttatilkynningu frá flokknum kemur fram að á fundinum hafi verið samþykkt ályktun þar sem segir að fundurinn lýsi „vanþóknun á framgangi ríkisstjórnar Davíðs Oddssonar í svonefndu fjölmiðlamáli og krefst þess að þjóðin fái að segja álit sitt í þjóðaratkvæðagreiðslu.“



Fleiri fréttir

Sjá meira


×