Innlent

Hafnar beitingu fjölmiðla í málinu

Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs og aðaleigandi Norðurljósa, hafnar því að hafa beitt fjölmiðlum fyrirtækisins gegn stjórnvöldum í fjölmiðlamálinu. Jón Ásgeir keypti allar eigur Jóns Ólafssonar í nóvember síðastliðnum, þar með talin Norðurljós, sem þá rak m.a. Stöð 2, Sýn og ýmsar útvarpsstöðvar. Áður hafði Jón Ásgeir keypt sig inn í Fréttablaðið og DV en í janúar á þessu ári sameinuðust allir miðlarnir undir hatt Norðurljósa, ásamt fleiri fyrirtækjum. Eigendur og stjórnendur Norðurljósa hafa, frá því fyrsta fjölmiðlafrumvarpið var lagt fram, sagt að því væri beint gegn fyrirtækinu, enda hefði þurft að skipta því upp ef lögin hefðu náð fram að ganga. Það er engin launung að andað hefur köldu á milli Jóns Ásgeirs og Davíðs Oddssonar forsætisráðherra síðustu misserin og hafa ýmsir séð samhengi þar á milli. Aðspurður hvort hann sé sáttur við niðurstöðuna í fjölmiðlamálinu segist Jón Ásgeir halda að þetta sé góð niðurstaða fyrir alla. Hann segist ekki líta svo á að hann hafi „unnið sigur“ í málinu heldur sé það sigur fyrir alla að málið sé skoðað ofan í kjölinn og allir málsaðilar fái að koma að lagasetningu fjölmiðla. Honum finnst málið hafa verið persónugert ansi mikið.   Jón Ásgeir segist ekki kannast við að hafa rekið einhverja pólitík í málinu. Aðspurður hvort hann hyggist eiga áfram hlut í fjölmiðlum segist Jón hafa áhuga á því, enda sjái hann ýmis tækifæri fólgin í því. Hann segist helst vilja sjá fyrirtæki eins og Norðurljós skráð á hlutabréfamarkað sem almenningshlutafélag. Spurður hvort hann búist við að það gangi eftir á næsta ári, eins og talað var um sl. vetur, segir Jón Ásgeir nýja stöðu komna upp í því máli sem gæti gert það að veruleika. Hægt er að hlusta á viðtal við Jón Ásgeir úr hádegisfréttum Bylgjunnar með því að smella á hlekkinn sem fylgir fréttinni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×