Maraþon og músík 13. október 2005 14:32
Allir geta verið með í Reykjavíkurmaraþoninu, þeir sem ekki vilja hlaupa ættu að drífa sig út og hvetja hlauparana áfram," segir Hjördís Guðmundsdóttir hjá Íþróttabandalagi Reykjavíkur sem sér um framkvæmd hlaupsins. "Þemað í ár verður músík og maraþon, við ætlum að leika tónlist undir skemmtiskokkinu en hvetjum líka þá sem ganga með trúbador í maganum að fara út á götu og leika tónlist fyrir þátttakendur." Eins og í fyrra er úr mörgum vegalengdum að velja, þriggja kílómetra skemmtiskokki, sjö kílómetrum, tíu kílómetrum, hálfmaraþoni sem er 21 kílómetri og maraþoni sem eru 42 kílómetrar. Tímataka er í öllum vegalengdum nema skemmtiskokki. Þegar hafa 1000 manns skráð sig en Hjördís vonast til að 4.000 manns taki þátt. "Íslendingar eru alltaf með seinni skipunum að skrá sig og skráningu lýkur ekki fyrr en á föstudag." Á föstudag verður pastaveisla fyrir þátttakendur í TBR-húsinu frá 18-21, þar geta þátttakendur einnig sótt bol og skráð sig frá hádegi. Reykjavíkurmaraþonið markar upphaf menningarnætur nú sem fyrr, hún verður sett um leið og skemmtiskokkið, kl. 11. Maraþonið sjálft hefst kl. 10.00. Skráning og frekari upplýsingar um hlaupið er að finna á heimasíðunni www.marathon.is.
Heilsa Mest lesið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Menning Carla Jeffery látin 33 ára að aldri Bíó og sjónvarp Greindu frá dánarmeini Tim Curry Lífið Gloria Steinem er látin Lífið Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Lífið Öskrandi nýnemar tolleraðir og busaballið handan við hornið Lífið Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Lífið Annað barn á leiðinni hjá Balta og Sunnevu Lífið Fleiri fréttir „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira