Bodyattack 30. ágúst 2004 00:01 "
Margir af tímunum okkar eru kenndir eftir Les Mills-kerfinu sem er tilbúið æfingakerfi sem hefur verið prófað og þrautreynt erlendis," segir Linda Hilmarsdóttir hjá líkamsræktarstöðinni Hress. "Þar á meðal eru tímar sem hafa verið vinsælir hérna eins og Bodypump og Bodybalance sem er blanda af jóga, Tai chi og Pilates, en við erum að bæta við okkur tímum þar vegna mikillar aðsóknar," segir Linda. Hún segir nýjustu viðbótina hjá Hress vera Bodyattack, sem er blanda af gömlu góðu þolfiminni og tímar sem reyna mikið á þolið. "Ætlast er til þess að fólk komi úr tímunum með það á tilfinningunni að það hafi gert aðeins meira en það ætlaði sér," segir Linda og bætir við að kennarnir fari í gegnum stranga þjálfun áður en þeir fái að kenna þessa tíma þannig að þeir viti nákvæmlega hvað þeir séu að gera. "Allir eiga að geta náð góðum árangri í þessum tímum og skemmt sér vel í leiðinni því á þriggja mánaða fresti endurnýjast tímarnir með nýrri tónlist og nýjum æfingum," segir Linda. Auk þessa segir Linda Hress vera með margt annað skemmtilegt í gangi eins og Rope yoga og orkutíma fyrir börn á aldrinum 12 til 16 ára. "Þetta eru tímar sem eru ætlaðir til að hjálpa krökkum sem aldrei eða lítið hafa stundað íþróttir að vera ábyrgir fyrir eigin heilsu. Þeir fá fræðslu um gott mataræði og líkamsrækt og aðstoðum við þá að finna líkamsrækt við hæfi," segir Linda og bætir við að tækjasalurinn standi auðvitað alltaf fyrir sínu og þangað geti allir leitað og jafnvel látið sérsníða fyrir sig æfingakerfi.
Heilsa Mest lesið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Menning Carla Jeffery látin 33 ára að aldri Bíó og sjónvarp Greindu frá dánarmeini Tim Curry Lífið Gloria Steinem er látin Lífið Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Lífið Öskrandi nýnemar tolleraðir og busaballið handan við hornið Lífið Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Lífið Annað barn á leiðinni hjá Balta og Sunnevu Lífið Fleiri fréttir „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira