Dómgreindarskortur Bush 20. september 2004 00:01
Ákvörðun George W. Bush, forseta Bandaríkjanna, að ráðast inn í Írak ber vott um dómgreindarskort og getur leitt stríðs sem ekki sér fyrir endann á. "Saddam Hussein var hræðilegur einræðisherra sem á skilið að fara til helvítis," sagði Kerry í ræðu sem hann flutti í New York-háskóla í gær. "En það er ekki nóg til þess að fara í stríð. Samt segir Bush að ef hann stæði í sömu sporum í dag og hann gerði áður en hann fór í stríðið myndi hann gera nákvæmlega það sama. Hvernig getur honum verið alvara? Er hann virkilega að segja að ef við vissum að það væri engin raunveruleg hætta vegna Íraka, engin gjöreyðingarvopn, engin tengsl við al-Kaída, þá ættum við samt að ráðast inn í landið? Mitt svar er nei. Það er meginhlutverk forsetans sem yfirmanns hersins að vera ábyrgur og taka vel ígrundaðar ákvarðanir sem stuðla að auknu öryggi Bandaríkjamanna. Bush steypti einræðisherra af stóli og gjaldið sem við greiðum er ringulreið og minna öryggi Bandaríkjamanna." Stjórnmálaskýrendur eru sammála um að ræða Kerry í gær hafi verið til þess fallin að kveða niður þær sögur um að hann sé ekki með neina stefnu varðandi Írak og stríðið. Steve Schmidt, einn af kosningastjórum Bush, segir að með orðum sínum sé Kerry að senda þau skilaboð til óvina Bandaríkjanna að Bandaríkjamenn séu linir og gefist auðveldlega upp.
Erlent Fréttir Írak Mest lesið Fundu lík karlmanns í Reynisfjalli Innlent Kona á níræðisaldri sá björninn í þriggja metra fjarlægð Innlent Frambjóðandi Trump lýsti sér sem „svörtum nasista“ á klámsíðu Erlent Sýknaður af ákæru um manndráp af gáleysi á Akureyri Innlent Ákærður fyrir að stinga lækni í kvöldgöngu Innlent Áhyggjuefni að innri landamærin séu ekki betur tryggð Innlent Rafrettukóngur og eigandi Drekans sakaðir um 740 milljóna brot Innlent „Kerfið er algjörlega að bregðast fólkinu“ Innlent Reyndist ekki faðir stúlknanna Innlent Nafn mannsins sem lést í vinnuslysi í Árborg Innlent Fleiri fréttir Frambjóðandi Trump lýsti sér sem „svörtum nasista“ á klámsíðu Hafa séð Hezbollah fyrir símboðum í tvö ár Gera umfangsmiklar árásir í Líbanon Felldu tugi og brenndu forsetaflugvélina Reyna að stöðva olíuleka eftir að skip sökk við Grænland Neyðarástand vegna skógarelda í Portúgal Margrét Þórhildur á sjúkrahúsi Átta ára tók fjölskyldubílinn, ók í Target og fékk sér frappó Tuttugu konur saka Mohamed Al Fayed um kynferðisofbeldi 20 létust og 450 slösuðust þegar talstöðvarnar sprungu Vitorðsmaður viðurkennir að hafa gert það sama og Pelicot Þrír handteknir eftir skotárás við skóla í Osló Talstöðvar springa einnig í Beirút Harris eykur forskotið á landsvísu Þverár Amasonfljóts þorna upp sem aldrei fyrr Símboðarnir sagðir koma frá ungversku skúffufélagi Meta úthýsir rússneskum ríkisfjölmiðlum Stærðarinnar sprengingar í vopnageymslu í Rússlandi Telur að hægt hefði verið að koma í veg fyrir kafbátsslysið Microsoft segir rússneskt tröllabú á bak við falsáróður um Harris Neitað um lausn gegn tryggingu og á yfir höfði sér lífstíðarfangelsi 169 börn sem fæddust eftir 7. október á lista yfir látnu Settu sprengjur í símboðana Látin eftir hákarlaárás suður af Kanaríeyjum „Það er hula yfir sólinni“ Norskur læknir grunaður um að nauðga 88 konum Tæplega þrjú þúsund slasaðir eftir að símboðar sprungu Stækkar herinn í þriðja sinn Verður kanslaraefni Kristilegra demókrata „Ég er nauðgari eins og hinir mennirnir hér inni“ Sjá meira