41 liggur í valnum 30. september 2004 00:01
Fjörutíu og einn maður hið minnsta liggur í valnum eftir þrjú sprengjustilræði í Bagdad í Írak í morgun. Bandarískir hermenn í Írak verða að meðaltali fyrir um áttatíu árásum á degi hverjum. Sprengjutilræðin í morgun voru greinilega skipulögð með það í huga að valda sem mestu tjóni. Fyrsta sprengjan var sjálfsmorðsárás sem gerð var skammt frá bílalest bandarískra hermanna í suðurhluta Bagdad. Seinni tvær sprengjurnar sprungu á sama stað, einmitt þegar almenning og hermenn dreif að til að reyna að aðstoða þá sem særðust og létust í fyrstu sprengingunni. Fórnarlömbin eru bæði írakskir borgarar og bandarískir hermenn. Og enn springa sprengjur í Bagdad því nú skömmu fyrir hádegi bárust fregnir af enn frekari sprengjutilræðum. Fréttaskýrendur segja að ástandið í Írak fari versnandi dag frá degi og vilja meina að öfgahópar séu að gíra sig upp fyrir fyrirhugaðar kosningar í landinu snemma á næsta ári. Fyrir aðeins mánuði síðan voru að meðaltali gerðar um fjörutíu árásir á dag á bandaríska hermenn en nú eru þær að meðaltali um áttatíu á dag. Þá fer mannránum einnig fjölgandi. Arabíska sjónvarpsstöðin Al Jazeera sýndi í morgun sjónvarpsupptöku frá írökskum öfgahópi sem segist hafa rænt tíu manns í Írak; sex Írökum, tveimur konum frá Indónesíu og tveimur frá Líbanon. Fólkið vinnur allt hjá rafeindafyrirtæki í Írak. Öfgahópurinn, sem kallar sig „Her Íslams“, hefur enn ekki sett fram neinar kröfur.
Erlent Fréttir Írak Mest lesið Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Erlent Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum Erlent Fleiri fréttir Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Sjá meira