Innlent

Braut meginreglu stjórnsýslulaga

Stefán Már Stefánsson lagaprófessor, sem Hæstiréttur taldi annan af hæfustu umsækjendum um dómarastöðu við Hæstarétt, telur að settur dómsmálaráðherra hafi brotið meginreglu stjórnsýslulaga og jafnréttislög þegar hann skipaði Jón Steinar Gunnlaugsson hæstaréttardómara í gær. Átta af dómurum Hæstaréttar töldu Stefán Má Stefánsson lagaprófessor hæfastan til að gegna stöðu Hæstaréttardómara ásamt Eiríki Tómassyni lagprófessor, af þeim sjö umsækjendum sem sóttu um dómarastöðuna. Geir H. Haarde, settur dómsmálaráðherra í málinu, gekk gegn því áliti og skipaði Jón Steinar Gunnlaugsson í starfið í gær. Stefán Már óskar Jóni velfarnaðar í starfi en hann telur að ekki hafi verið rétt að embættisveitingunni staðið og hann gagnrýnir vinnubrögð ráðherra. Hann segir Hæstarétt lögbundin umsagnaraðila eins og sé í mörgum öðrum löndum og eigi því að hafa um það að segja hver sé skipaður í dóminn. Það tryggir líka sjálfstæði hans gagnvart öðrum handhöfum ríkisvaldsins. Stefán segir Hæstirétt hafa gert þetta í mjög ítarlegu áliti þar sem tekin eru fyrir níu atriði og þau greind. Rétturinn segi þar að ekkert eitt af þeim atriðum megi leggja til grundvallar heldur verði að gera það að öllum atriðunumn samanlögðum. „Ef horft er á þetta þá hefur ráðherra, sem hefur óvéfengjanlega formlegt vald til að ákveða hæstaréttardómara, brotið meginreglu stjórnsýslulaga og jafnréttislög eins og málin standa nú,“ segir Stefán. „Það er að segja, þessu lögbundna áliti Hæstaréttar hefur ekki verið hnekkt og því verður alls ekki hnekkt með að benda á að einn sé mjög (svo) hæfari í einu af þessum níu atriðum.“      Stefán Már hefur ekki tekið ákvörðun um hvort hann fari lengra með málið og þá hvert. Lögmaður Hjördísar Hákonardóttur, sem dómarar Hæstaréttar sögðu koma næst Stefán Má og Eiríki að hæfni til að gegna starfinu, hefur lýst því yfir að óskað verði eftir rökstuðningi ráðherra fyrir ákvörðun hans.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×