Kostnaðurinn enn á huldu 13. október 2005 14:44
Endurbótunum sem staðið hafa yfir í allt sumar í Alþingishúsinu er lokið í bili. Upphaflega var gert ráð fyrir að kostnaður við þær næmi um 75 milljónum króna en endanlegur kostnaður liggur ekki fyrir. Þó er ljóst að reikningurinn verður í það minnsta 100 milljónir króna. Alþingi kynnti framkvæmdirnar á blaðamannafundi í gær en um þriðja hluta heildarendurbóta hússins er að ræða. Nauðsynlegt var að brjóta upp gólfplötur á jarðhæð hússins og skipta um jarðveg undir þeim en verulegar rakaskemmdir voru farnar að gera vart við sig. Að öðru leyti hefur verið reynt að færa húsið því sem næst í sitt upprunalega horf. Þannig er búið að mála þingflokksherbergi í bjartari litum, fjarlægja gólfteppi svo að gólffjalir eru komnar í ljós og taka upp ljósakrónur og gömul húsgögn sem áður voru í geymslu. Arkitektar hjá Batteríinu sáu um hönnun en Ístak annaðist framkvæmdirnar. Gert var ráð fyrir að kostnaður við verkið yrði um 75 milljónir króna en eins og þegar hefur komið fram í Fréttablaðinu verður hann að minnsta kosti 100 milljónir króna, eða þriðjungi hærri en áætlað var. Meðal skýringa sem Halldór Blöndal, forseti Alþingis, tilfærði voru ófyrirséðir þættir á borð við jarðvegsskiptin og þinghald sumarsins en vegna sumarþingsins varð verktakinn að ráðast í kostnaðarsaman bráðabirgðafrágang. Endanlegur kostnaður liggur ekki fyrir og sagði Halldór að ekkert óeðlilegt væri við það þar sem svo skammt væri frá lokum framkvæmda. Halldór sagði að þegar farið er í endurbætur á svo gömlu húsum, sérstaklega í Kvosinni þar sem flóðs og fjöru gætir í kjöllurum, þá á að gera ráð fyrir verulegum skekkjumörkum. Aðspurður hvort slík kostnaðarhækkun væri viðunandi svaraði Halldór því til að það eina sem væri viðunandi þegar gert væri við svo gamalt hús væri að það væri vel gert. "Útboð eru ágæt til síns brúks en stundum taka þau ekki yfir alla hluti, það er alveg ljóst," bætti þingforsetinn við.
Alþingi Fréttir Innlent Mest lesið Kona á níræðisaldri sá björninn í þriggja metra fjarlægð Innlent Hvítabjörninn felldur: Forðaði sér inn og sendi skilaboð á dóttur sína Innlent Reyndist ekki faðir stúlknanna Innlent Benedikt Sveinsson er látinn Innlent Endalaus þrautaganga Haraldar eftir svörum Innlent Rafrettukóngur og eigandi Drekans sakaðir um 740 milljóna brot Innlent Sárnar hvernig fjölskyldunni bárust tíðindin hörmulegu Innlent Nafn mannsins sem lést í vinnuslysi í Árborg Innlent Lögregla komin með ágæta mynd af atburðum Innlent Neitað um lausn gegn tryggingu og á yfir höfði sér lífstíðarfangelsi Erlent Fleiri fréttir Fundu lík karlmanns í Reynisfjalli Sýknaður af ákæru um manndráp af gáleysi á Akureyri Ákærður fyrir að stinga lækni í kvöldgöngu „Kerfið er algjörlega að bregðast fólkinu“ Vinnuslys töluvert tíðari á Íslandi en í Noregi Áhyggjuefni að innri landamærin séu ekki betur tryggð Dæmi um að fólk hafi fallið frá á meðan beðið er eftir NPA-þjónustu Kona á níræðisaldri sá björninn í þriggja metra fjarlægð Brynjar vill herða upp á mannréttindahugtakinu Hvítabjörninn felldur: Forðaði sér inn og sendi skilaboð á dóttur sína Útilokar ekki að snúa sér að öðrum verkefnum Senda vopnaða menn á svæðið Tilkynnt um ísbjörn og þyrla gæslunnar ræst út Óska eftir myndefni af Krýsuvíkurvegi Rafrettukóngur og eigandi Drekans sakaðir um 740 milljóna brot Nafn mannsins sem lést í vinnuslysi í Árborg „Fatlaða fólkið verður fyrir miskanum“ Hart tekist á um netaveiði í Ölfusá Reyndist ekki faðir stúlknanna Boða til kyrrðarstundar því íslenskt samfélag standi á krossgötum Engar ábendingar borist þrátt fyrir ákall Ríki og sveitarfélög benda á hvort annað varðandi NPA Útlendingum á Íslandi fjölgar hratt Brynjar snýr sér að mannréttindamálum Almenn ánægja með nýtt útlit Alþingis Brynjar segir af sér Forsætisráðherra mætir fyrstur manna í Samtalið Sjálfsagt að skoða að semja við önnur ríki um að hýsa erlenda fanga Benedikt Sveinsson er látinn Endalaus þrautaganga Haraldar eftir svörum Sjá meira