Eigið fé þrefaldast frá áramótum 14. október 2004 00:01
Eigið fé KB banka er orðið 149 milljarðar króna eftir hlutafjárútboðið í gær en var fjörutíu og sex milljarðar í ársbyrjun. Það hefur því ríflega þrefaldast frá áramótum. Allar hundrað og tíu milljónir hluta, sem í boði voru í útboðinu í gær, seldust upp eins og fréttastofan greindi reyndar frá strax í hádeginu í gær. Gengi þeirra var fjögur hundruð og áttatíu krónur á hlut þannig að salan nam tæpum fimmtíu og þremur milljörðum króna. Gengi á bréf í fyrradag var hins vegar tuttugu krónum hærra þannig að gengi á bréfunum í gær var fjórum prósentum lægra. Það þykja lítil frávik frá almennu gengi eins og það var sem gæti skýrst af því að hluthafahópur, sem tilheyrir KB banka, keypti helminginn. Deutsche Bank sá um sölu á hinum helmingnum sem að mestu var seldur til útlanda, eftir því sem fréttastofan kemst næst. Mun færri fengu bréf í gær en vildu því eftirspurnin var upp á rúmlega 86 milljarða, eða 23 milljörðum meiri en öll bréfin fóru á. Sérfræðingar telja að bankinn sé nú í stakk búinn til að ná meirihluta í breska bankanum Singer og Friedlander, sem hann á nú þegar nítján prósent í, en bréf í breska bankanum hækkuðu verulega þegar fréttist af hlutafjárútboði KB banka.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Viðskipti innlent Fréttamaður missti af strætónum til baka Neytendur Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Viðskipti innlent Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Atvinnulíf Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag Viðskipti innlent 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Viðskipti innlent „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Viðskipti innlent Gapti þegar hún sá heimilisbókhaldið hjá Röggu nagla Neytendur Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Viðskipti innlent Klíníkin sótti 300 milljónir króna Viðskipti innlent Fleiri fréttir Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Sjá meira