Innlent

Annir hjá Kópavogslöggunni

Þrjú fíkniefnamál komu upp í Kópavogi aðfaranótt laugardags. Lögregla stöðvaði annars vegar ökumann og hins vegar tvo gangandi vegfarendur í annarlegu ástandi. Fundust bæði hass og amfetamín við leit á viðkomandi einstaklingum. Talið er að efnin hafi verið ætluð til eigin nota. Eiturlyfin voru gerð upptæk á staðnum. Þá var einn ökumaður tekinn ölvaður undir stýri aðfaranótt laugardags. Að morgni laugardags kom svo upp eldur í ruslageymslu við Þverbrekku, en lögregla rannsakar upptök hans.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×