Innlent

Hljóðkútur inn um framrúðu

Hljóðkútur kastaðist af vagni vörubifreiðar og inn um glugga fólksbíls skammt norður af Borgarnesi um miðjan dag í gær. Kúturinn fór í andlit farþega í framsæti og stöðvaðist svo á milli sætanna. Ekki mátti miklu muna að hlytist af þessu alvarlegt slys, að sögn lögreglu. Farþeginn meiddist lítilsháttar og var fluttur á Heilsugæslustöðina í Borgarnesi þar sem hann fékk aðhlynningu. Þegar blaðið fór í prentun hafði ekki tekist að hafa upp á ökumanni vörubifreiðarinnar en hann varð að öllum líkindum ekki var við atvikið.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×