Meðfædd eining vakin á ný 25. október 2004 00:01
Í Jógasetrinu Brautarholti 20 er Sahaja-jóga kennt í sjálfboðavinnu. Kennarinn Rita Defruyt frá Belgíu segir það vera í samræmi við fordæmi frumkvöðuls Sahaja, hinnar indversku Shri Mataji Nirmala Devi. Kenndar eru einfaldar hugleiðsluæfingar og er mælt með því við iðkendur að þeir hugleiði við mynd af Shri til að auka hughrifin. Markmiðið með Sahaja að vekja upp svokallað Kundalini, afl sem tengist alheimsorkunni, en með því megi vinna á ýmsum kvillum og öðlast andlegt og líkamlegt jafnvægi. "Í hverjum einstaklingi býr orkukerfi sem byggt er upp af sjö orkustöðvum, Kundalini og Andanum," segir Rita. "Sahaja-jóga snýst um að virkja þetta orkukerfi til að ná aftur því jafnvægi og einingu við annað fólk sem við fæddumst með en höfum glatað á leiðinni, en Sahaja-jóga merkir einmitt meðfædd eining. Mannkynið getur vaxið sameiginlega með því að samræma öll trúarkerfi, en Kundalini-vakning á sér samstæðu í öllum trúarbrögðum, svo sem endurfæðingu eða heilagan anda í kristni og uppljómun í búddisma. Shri bendir okkur á að friður í heiminum verði ekki tryggður fyrr en við höfum öðlast jafnvægi og frið í okkar eigin sálarrótum." Þeir sem hafa áhuga á að kynna sér Sahaja-jóga geta mætt í Jógasetrið, en þar er tekið við byrjendum öll mánudagskvöld klukkan 20, eða kynnt sér heimasíðuna sahajayogaisland.org.
Heilsa Mest lesið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Menning Carla Jeffery látin 33 ára að aldri Bíó og sjónvarp Greindu frá dánarmeini Tim Curry Lífið Gloria Steinem er látin Lífið Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Lífið Öskrandi nýnemar tolleraðir og busaballið handan við hornið Lífið Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Lífið Annað barn á leiðinni hjá Balta og Sunnevu Lífið Fleiri fréttir „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira