Innlent

Páll kom til greina

Allar líkur eru taldar á því að Hansína Ásta Björgvinsdóttir, oddviti framsóknarmanna í bæjarstjórn Kópavogs, taki við starfi bæjarstjóra. Formleg ákvörðun um hver muni gegna starfinu verður tekin á fulltrúaráðsfundi framsóknarmanna í Kópavogi á morgun. Hansína segir að hún og Gunnar I. Birgisson, oddviti sjálfstæðismanna, hafi náð samkomulagi um hver taki við starfinu. Fram komu hugmyndir innan Framsóknarflokksins um að Páll Magnússon, aðstoðarmaður Valgerðar Sverrisdóttur, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, tæki við starfinu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×