Innlent

Flaggað í hálfa stöng í dag

Ákveðið hefur verið að flaggað verði í hálfa stöng við opinberar stofnanir í dag, nýársdag, til þess að votta hinum látnu í náttúruhamförunum við Indlandshaf virðingu. Einnig verður flaggað í hálfa stöng við opinberar byggingar í Noregi, Svíþjóð og Finnlandi. Mælst hefur verið til þess að almenningur geri slíkt hið sama og votti þannig fórnarlömbum flóðanna virðingu sína að því er fram kemur í frétt frá forsætisráðuneytinu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×