Mikill áhugi á bréfum FL Group 11. nóvember 2005 06:45 Hannes Smárason Forsvarsmenn FL Group eru í skýjunum eftir að ljóst var að fagfjárfestar óskuðu eftir bréfum fyrir ríflega fimmtán milljörðum meira en í boði var í hlutafjárútboði félagsins.
Fagfjárfestar sýndu nýju hlutafé í FL Group mikinn áhuga. Allir helstu lífeyrissjóðir og fjárfestingasjóðir tóku þátt í útboðinu og skráðu sig alls fyrir 33,6 milljörðum króna. Hannes Smárason segir þetta mikla traustsyfirlýsingu til handa stjórnendum félagsins, en eftir útboðið verður eigið fé FL Group 66 milljarðar króna sem geri það að stærsta fjárfestingarfélagi landsins. "Niðurstaðan er afar góð og breiður hópur sem kemur að þessu útboði," sagði Hannes í gærkvöld þegar niðurstaðan var ljós. Stærstu hluthafar félagsins keyptu nýja hluti fyrir 28 milljarða króna. KB banki og Landsbankinn höfðu fyrir útboðið tryggt kaup á átta milljörðum, en í ljósi eftirspurnar var sá hlutur minnkaður og fengu fagfjárfestar tæpum fimm milljörðum meira en til stóð í upphafi eða 12,9 milljarða. Nýjum hluthöfum var boðið að greiða fyrir nýtt hlutafé með bréfum í stærstu skráðu félögum í Kauphöll Íslands. Niðurstaða af því varð sú að greitt verður fyrir 44 prósent nýs hlutafjár með hlutabréfum, en 56 prósent verða greidd með reiðufé. FL Group samdi um kaup á danska flugfélaginu Sterling fyrir skemmstu. Félagið á auk þess ríflega sextán prósenta hlut í lággjaldaflugfélaginu easyJet. FL Group hefur boðað að félagið hyggist leggja áherslu á fjárfestingar í Evrópu.
Innlent Viðskipti Mest lesið Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Viðskipti innlent Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Atvinnulíf Fréttamaður missti af strætónum til baka Neytendur Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Viðskipti innlent Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til Viðskipti erlent Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Viðskipti innlent 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Viðskipti innlent Klíníkin sótti 300 milljónir króna Viðskipti innlent G7 setja hundrað milljón tunnur á markaðinn Viðskipti erlent Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag Viðskipti innlent Fleiri fréttir Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Sjá meira