Innlent

Geir, Birgir og Þorsteinn Pálsson

Geir H. Haarde fjármálaráðherra, Þorsteinn Pálsson sendiherra og Birgir Ármannsson alþingismaður verða fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í stjórnarskrárnefnd sem Halldór Ásgrímsson skipar á næstunni. Davíð Oddsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, skýrði frá þessu í sjónvarpsþættinum Kryddsíld á Stöð 2. Formenn stjórnarandstöðuflokkanna, Össur Skarphéðinsson, Steingrímur J. Sigfússon og Guðjón Arnar Kristjánsson, verða í nefndinni. Ekki hefur verið ákveðið hver verður annar fulltrúi Samfylkingarinnar og forsætisráðherra hefur ekki skýrt frá hverjir tveir fulltrúar flokksins verða en annar þeirra verður formaður.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×