Innlent

Fagna yfirlýsingu Davíðs

Starfsmannaráð Landspítala - háskólasjúkrahúss fagnar yfirlýsingu Davíðs Oddssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins, um ráðstöfun söluandvirðis Símans til uppbyggingar nýs hátæknisjúkrahúss. Ráðið segir yfirlýsinguna styðja við mikið undirbúningsstarf sem stjórnendur og starfsfólk sjúkrahússins hafi innt af hendi með heilbrigðisráðuneytinu og að sérstakt fagnaðarefni sé að nú hafi skapast breið pólitísk samstaða um að hefjast handa við að byggja hið nýja sjúkrahús. Þetta kemur fram í tilkynningu frá starfsmannaráði Landspítalans.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×