Frjáls fjölmiðlun til rannsóknar 16. janúar 2005 00:01
Jón H. Snorrason, yfirmaður efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra, segir fjölda mála vera til rannsóknar sem tengist gjaldþroti Frjálsrar fjölmiðlunar, fyrirtækinu og forsvarsmönnum þess. Ekki hafi þó verið nægt tilefni til að rannsaka eitt ákveðið mál tengt gjaldþrotinu þar sem skiptastjóri óskaði eftir aðstoð embættisins við nálgast gögn um fjárreiður Time Invest í Lúxemborg. "Það er fjöldi mála sem tengjast starfsemi forsvarsmanna Frjálsrar fjölmiðlunar sem tekin voru til rannsóknar um og eftir gjaldþrotið," segir Jón. Aðspurður segir hann marga hafa verið yfirheyrða og það kunni fjöldi manna að tengjast rannsókn þessara mála þegar upp verði staðið, og nefnir hann þar forsvarsmenn auk annarra sem störfuðu fyrir þá. Málin sem eru til rannsóknar tengjast ætluðum auðgunarbrotum svo og brotum á skattalöggjöfinni. "Ég fór fram á að þeir athuguðu hvort gögn um Time Invest væri til en þeir höfnuðu því. Þeir telja sig ekkert geta gert og ég verð að sæta því," segir Sigurður Gizurarson, skiptastjóri þrotabús Frjálsrar fjölmiðlunar. Jón H. Snorrason segir rökstuddan grun verða að vera til staðar svo hægt sé að hefja rannsókn. Sá grunur hafi verið fyrir hendi í fjölda mála tengdum Frjálsri fjölmiðlun en ekki í þessu einstaka máli. Jón segir skiptastjóra hugsanlega geta styrkt grunsemdir með frekari vinnu.
Fréttir Innlent Lög og regla Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Fleiri fréttir Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Sjá meira