Erlent

Júsjenko heimsækir Rússland

Nýkjörinn forseti Úkraínu, Viktor Júsjenko, ætlar að heimsækja Rússland strax eftir að hafa verið settur inn í embætti á sunnudag. Stjórnvöld í Rússlandi studdu keppinaut hans, Viktor Janúkovítsj, í kosningabaráttunni en Valdimír Pútín Rússlandsforseti hefur boðið Júsjenko velkominn. Fyrstu verk Júsénkos verða að velja forsætisráðherra og tryggja sér stuðning þingsins. Það gæti orðið snúið þar sem stuðningsmenn Júsjenkos skiptast í marga hópa. Hæstiréttur Úkraínu staðfesti í gærkvöldi að Júsjenko hefði sigrað í hinum endurteknu kosningum og hafnaði lokaáfrýjun Janúkovítsj.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×