Er uggur í Alþingishúsinu? Guðmundur Magnússon skrifar 26. janúar 2005 00:01 Sagt er að einkennilegt andrúmsloft hafi verið í Alþingishúsinu við Austurvöll mánudaginn 11. mars árið 1991. Þingmenn, sem jafnan voru skrafhreifnir og léttir í lund, hafi verið óvenju þögulir þennan dag og þungt hugsi. Hafi engu skipt hvaða stjórnmálaflokki þeir tilheyrðu. Þeir hafi talað saman í lágum hljóðum eins og þeim hefðu borist váleg tíðindi eða dapurleg eða væru staddir í jarðaför. Úti fyrir dyrum þinghússins gekk lífið hins vegar sinn vana gang og þjóðin hafði síst á tilfinningunni að eitthvað væri í aðsigi sem hún þyrfti að hafa áhyggjur af.Hvað var það sem olli lægðinni í þinghúsinu? Fyrir glögga og minnuga ætti að vera auðvelt að giska á svarið. Daginn áður hafði Davíð Oddsson borgarstjóri í Reykjavík verið kjörinn formaður Sjálfstæðisflokksins eftir harða kosningabaráttu við Þorstein Pálsson sem verið hafði formaður flokksins í átta ár. Davíð sat ekki á þingi eins og Þorsteinn en þingmönnum í öllum flokkum var samt oftar til hans hugsað en nokkurs annars stjórnmálamanns. Nafn hans var ítrekað nefnt í ræðustól þingsins. Úti í þjóðfélaginu naut hann mikilla vinsælda og hafði sem borgarstjóri unnið stærri stjórnmálasigra en nokkur fyrirrennara hans. En hann var óvenjulegur og óhefðbundinn í framgöngu og fasi, djarfur í skoðunum og talsmáta, og ekki datt nokkrum manni í hug að segja að hann væri í vasa einhvers eða einhverra, hvorki embættismanna eða kaupsýslumanna né ættarveldis eða hagsmunasamtaka. Það var sjálfstæði og sjálfsöryggi Davíðs Oddssonar í orðum og verkum samfara óvenjulegum vinsældum, jafnvel þvert á flokkslínur, sem réð því að alþingismönnum stóð stuggur af honum. Þeir vissu að hann stóð fyrir breytingar en nákvæmlega hverjar og hvernig áttu þeir erfitt með að henda reiður á. En örygginu í "Klúbbnum" þeirra var ögrað og ógnað. Á því lék ekki vafi. Ekki er örgrannt um að hugsun og viðhorf alþingismanna til Davíðs Oddssonar árið 1991 megi að breyttu breytanda heimfæra upp á stöðu Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur um þessar mundir. Gagnvart þinginu er hún utangarðsmaður eins og Davíð var. Hún er ekki "Klúbbnum" ef nota má það hugtak yfir samkennd, skilning og hagsmuni þingmanna þvert á flokksbönd. Auðvitað á hún vini og samherja í þinghúsinu en hinir eru langtum fleiri, líka í hennar eigin flokki, sem hafa efasemdir um hana, stendur stuggur af henni, eru andsnúnir henni og þykir óþægileg tilhugsunin um hana í formannsstól Samfylkingarinnar. Þeir óttast að hún trufli ýmis áform og skaði sambönd. Ingibjörgu Sólrúnu og Davíð Oddssyni hefur oft verið líkt saman - báðum til mikillar hrellingar! En þótt þau standi fyrir ólíka hluti og stefnu og stíl finnst mörgum sem horfa á stjórnmálin utan frá og án gleraugna stjórnmálaflokkanna að þau eigi margt sameiginlegt; sumt gott, annað miður gott. Í fyrri flokkinn flokkinn fellur sjálfstæði, röggsemi, hugrekki til að fara eigin leiðir og skilningur á sögulegu og hugmyndalegu samhengi stjórnmálanna. Í hinn síðari fellur ýmislegt í stíl þeirra, framgöngu og talsmáta. Þau eru stundum úr hófi kappsöm í umræðum, oft ögrandi í málflutningi og framsetningu skoðana. Og mörgum þykir jafnvel stjórnunarstíllinn sviplíkur. Um ádeilur á valdshyggju Davíðs Oddssonar þarf ekki að fara mörgum orðum. Og þótt Ingibjörg Sólrún hafi um skeið verið boðberi svokallaðra "umræðustjórnmála" eða samráðsstefnu í stjórnmálum - sem um margt er skynsamleg og tímabær - finnst mörgum að tæpur áratugur hennar í stól borgarstjóra í Reykjavík hafi fremur einkennst af valdsmannsstefnu en lýðræðislegu samráði "umræðustjórnmála". Hefur gagnrýni af þessu tagi ekki bara heyrst frá stjórnarandstæðingum í borgarstjórn heldur einnig innan úr Reykjavíkurlistanum. Það greiddi götu Davíðs Oddssonar árið 1991 að sem borgarstjóri í Reykjavík var hann í áberandi valdastöðu í þjóðfélaginu. Kosningar fóru fram nokkrum vikum eftir að hann var kjörinn formaður og í kjölfarið myndaði hann ríkisstjórn. Aftur á móti er Ingibjörg Sólrún embættislaus og þingkosningar verða að óbreyttu ekki fyrr en eftir tvö ár. Jafnvel eftir að Davíð varð formaður Sjálfstæðisflokksins og forsætisráðherra átti hann í erfiðleikum með að ná tökum á þingflokki sínum; gerðu gamlir smákóngar í flokknum honum iðulega lífið leitt. Það er með öðrum orðum ekki fullur sigur unnin með formannskjöri einu. Eftirleikurinn getur verið erfiður, ekki síst ef ytri aðstæður í stjórnmálum eru óhagstæður. Um það leyti sem Davíð bauð sig fram gegn Þorsteini Pálssyni lýsti sá síðarnefndi því yfir að hann sæi hann, þ.e. Davíð, fyrir sér sem framtíðarleiðtoga Sjálfstæðisflokksins. Bara ekki núna! Og í viðtali við F2, fylgiblað Fréttablaðsins, í dag minnir Ingibjörg Sólrún á að Össur Skarphéðinsson hafi sagt að hann telji hana, þ.e. Ingibjörgu Sólrúnu, framtíðarleiðtoga Samfylkingar. En bara ekki núna! Þetta eru skemmtilegar sögulegar hliðstæður. En er tími Ingibjargar Sólrúnar runninn upp með svipuðum hætti og Davíðs árið 1991? Segja má að Davíð hafi verið réttur maður á réttum stað og tíma. Þær miklu breytingar sem urðu á tíunda áratugnum voru ekki verk hans sem slíks heldur lágu þær í tímanum og voru öðrum þræði alþjóðlegar. Ekki er auðvelt að sjá fyrir sér að áratugurinn sem framundan er búi yfir sömu tækifærum til að láta að sér kveða. Og þó að Davíð Oddsson hafi komist upp með að hafa ekki mjög skýra stefnu í kosningunum 1991 er ekki víst að Ingibjörg Sólrún komist upp með það árið 2005. Sigur í formannskjöri í Samfylkingunni er ekki ávísun á kosningasigur.Hvaða möguleika á Ingibjörg Sólrún til að verða formaður Samfylkingarinnar? Um það fer tvennum sögum, en flestir telja þó að þeir séu allmiklir því um er að ræða póstkosningu meðal almennra félagsmanna. Fylgi hennar sé hjá "grasrótinni" í flokknum en fylgi núverandi formanns meira hjá forystusveit á þingi og í sveitarstjórnum. Fylgismenn Össurar Skarphéðinssonar benda á að hann hafi náð slíkum árangri í kosningum - og viðhaldið í könnunum - að réttmætt sé að hann sé áfram leiðtogi. Þeir benda á að hann eigi auðveldara en Ingibjörg Sórún með að umgangast aðra stjórnmálaforingja og mynda trúnaðarsamband við þá. Ingibjörg Sólrún sé nánast persona non grata í augum sumra forystumanna í öðrum flokkum; þeir muni aldrei sitja í ríkisstjórn undir hennar forsæti og geti vart hugsað sér stjórnarsamstarf við Samfylkinguna undir hennar forystu. Eitthvað svipað lá í loftinu þegar Davíð Oddsson varð formaður Sjálfstæðisflokksins fyrir hálfum öðrum áratug. Flokksleiðtogar eins og Steingrímur Hermannsson þáverandi forsætisráðherra, Framsóknarflokki, Júlíus Sólnes umhverfisráðherra, Borgaraflokki, og Ólafur Ragnar Grímsson fjármálaráðherra, Alþýðubandalagi, gátu ekki hugsað sér að vinna með honum. En örlög þeirra í stjórnmálum eru efni í annan þátt... Hvað gerist næst? Reynir "Klúbburinn" kannski að koma í veg fyrir að utangarðsmaður hasli sér völl innanbúðar? Alþingismenn utan Samfylkingar hafa auðvitað ekki atkvæðisrétt í formannskjörinu en uppákomur í stjórnmálum geta haft áhrif á úrslit kosninganna. Ef til dæmis Össur Skarphéðinsson yrði ráðherra áður en kosningin hæfist er ekki ólíklegt að ýmsir flokksmenn hans hugsuðu sig um tvisvar áður en þeir felldu hann úr stólnum. Eru líkur á því? Tæpast. Það blasir að vísu við að á stjórnarheimilinu þrá hjónin tilbreytingu, eru orðin þreytt á sambandinu sem fyrir löngu er orðið ástlaust og innihaldslítið. Tilefni til skilnaður hrannast upp; nú síðast Öryggisráðsmálið. En það er ansi djarft að láta sér til hugar koma að framundan sé hröð atburðarás til þess eins að koma í veg fyrir að Ingibjörg Sólrún trufli stemmninguna í "Klúbbnum". Samt. "Vika er langur tími í stjórnmálum..." Það getur enn ýmislegt gerst...Guðmundur Magnússon -gm@frettabladid.is. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Guðmundur Magnússon Í brennidepli Mest lesið Ástandið, jólavókaflóðið og druslur nútímans Sæunn I. Marinósdóttir Skoðun VII. Aðförin að Ólafi Jóhannessyni Hafþór S. Ciesielski Skoðun Þegar þeir sem segjast þjóna þjóðinni ráðast á hana Ágústa Árnadóttir Skoðun Djöfulsins, helvítis, andskotans pakk Vilhjálmur H. Vilhjálmsson Skoðun Þetta varð í alvöru að lögum! Snorri Másson Skoðun Gerið Ásthildi Lóu aftur að ráðherra – taka tvö Eyjólfur Pétur Hafstein Skoðun Þegar jólasveinninn kemur ekki á hverri nóttu Guðlaugur Kristmundsson Skoðun Var ég ekki nógu mikils virði? Kristján Friðbertsson Skoðun Fólkið sem hverfur... Kristján Fr. Friðbertsson Skoðun Andi hins ókomna á stjórnarheimilinu? Jean-Rémi Chareyre Skoðun Skoðun Skoðun Ástandið, jólavókaflóðið og druslur nútímans Sæunn I. Marinósdóttir skrifar Skoðun Gerið Ásthildi Lóu aftur að ráðherra – taka tvö Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar Skoðun Mikilvægi björgunarsveitanna Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar Skoðun Andi hins ókomna á stjórnarheimilinu? Jean-Rémi Chareyre skrifar Skoðun Var ég ekki nógu mikils virði? Kristján Friðbertsson skrifar Skoðun Jólin eru rökfræðilega yfirnáttúruleg – og sagan sem menn dóu fyrir lifir enn Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Þegar jólasveinninn kemur ekki á hverri nóttu Guðlaugur Kristmundsson skrifar Skoðun 100 lítrar á mínútu Sigurður Friðleifsson skrifar Skoðun Stöðugleiki sem viðmið Arnar Laxdal skrifar Skoðun Taktu af skarið – listin að breyta til áður en þú ert tilbúin Þuríður Santos Stefánsdóttir skrifar Skoðun Loftslagsmál: tölur segja sögur en hvaða sögu viljum við? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hvaðan koma jólin okkar – og hvað kenna þau okkur um menningu? Margrét Reynisdóttir skrifar Skoðun Náungakærleikur á tímum hátíða Hanna Birna Valdimarsdóttir,Harpa Fönn Sigurjónsdóttir,Helga Edwardsdóttir,Sigríður Elín Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun Hver borgar fyrir heimsendinguna? Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Innviðir og öryggi í hættu í höndum ráðherra Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun „Steraleikarnir“ Birgir Sverrisson skrifar Skoðun Fínpússuð mannvonska Armando Garcia skrifar Skoðun Fólkið sem hverfur... Kristján Fr. Friðbertsson skrifar Skoðun Gengið til friðar Ingibjörg Haraldsdóttir,Elín Oddný Sigurðardóttir skrifar Skoðun Gerið Ásthildi Lóu aftur að ráðherra Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Mótmæli bænda í Brussel eru ekki sjónarspil – þau eru viðvörun Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar gigtin stjórnar jólunum Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Fullveldi í framkvæmd Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Verður Flokkur fólksins að Flótta fólksins? Júlíus Valsson skrifar Skoðun „Rússland hefur ráðist inn í 19 ríki“ - og samt engin ógn? Daði Freyr Ólafsson skrifar Skoðun Fæðuöryggi sem innviðamál í breyttu alþjóðakerfi Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Svona gerum við… fjármagn til áfengis- og vímuefnameðferðar aukið um 850 milljónir Alma Möller skrifar Skoðun Gluggagægir fyrir innan gluggann. Gervigreindin lifnar við Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar Skoðun Samstíga ríkisstjórn í sigri og þraut Kristrún Frostadóttir skrifar Skoðun Vextir á verðtryggðum lánum - ögurstund Hjalti Þórisson skrifar Sjá meira
Skoðun Jólin eru rökfræðilega yfirnáttúruleg – og sagan sem menn dóu fyrir lifir enn Hilmar Kristinsson skrifar
Skoðun Taktu af skarið – listin að breyta til áður en þú ert tilbúin Þuríður Santos Stefánsdóttir skrifar
Skoðun Náungakærleikur á tímum hátíða Hanna Birna Valdimarsdóttir,Harpa Fönn Sigurjónsdóttir,Helga Edwardsdóttir,Sigríður Elín Ásgeirsdóttir skrifar
Skoðun Svona gerum við… fjármagn til áfengis- og vímuefnameðferðar aukið um 850 milljónir Alma Möller skrifar
Skoðun Gluggagægir fyrir innan gluggann. Gervigreindin lifnar við Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar