Rödd frelsis ómar frá Írak 30. janúar 2005 00:01
George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, lýsti í gær mikilli ánægju sinni með framkvæmd kosninganna í Írak. Hann lofaði því að Bandaríkin myndu áfram reyna að tryggja öryggi almennra borgara í landinu. "Heimurinn heyrir nú rödd frelsis óma frá Írak," sagði Bush við blaðamenn í Hvíta húsinu eftir að kjörstöðum hafði verið lokað í Írak. Hann hrósaði þeim Írökum sem kusu þrátt fyrir að uppreisnarmenn hefðu hótað árásum á kjörstaði. Alls létust 44 í sjálfsmorðsárásum og sagði Bush að þeir kjósendur hefðu látist hafa fórnað sér fyrir mikilvægasta málstaðinn - frelsið. Líkt og á laugardaginn sagði Bush að kosningarnar myndu ekki binda enda á hryðjuverkaárásir öfgamanna. Bandaríkjamenn myndu hins vegar hjálpa Írökum til þess stöðvar árásirnar og koma á friði þar til hið nýja lýðræðisríki gæti sjálft borið ábyrgð á öryggi borgaranna. Edward Kennedy, öldungardeildarþingmaður demókrata, sendi frá sér yfirlýsingu í gær þar sem hann segir að Bush verði að líta lengra fram í tímann. Nauðsynlegt væri að sýna Írökum fram á það að Bandaríkjamenn hefðu ekki uppi önnur áform í landinu en að koma á lýðræði. Besta leiðin til þess væri að byrja strax á því að senda hluta hermannanna heim til Bandaríkjanna. Írösku kosningarnar: Kosið var stjórnlagaþing og kjörtímabilið er 11 mánuðir 275 þingmenn sitja á þinginu Þingið velur forseta og tvo varaforseta Forsetarnir velja forsætisráðherra og ríkisstjórn sem þingið þarf að samþykkja Þingið mun skrifa nýja stjórnarskrá Stjórnarskráin verður lögð fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu í október Ef stjórnarskráin verður samþykkt verða þingkosningar í desember Ef stjórnarskránni verður hafnað verður aftur kosið stjórnlagaþing
Erlent Fréttir Írak Mest lesið Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Innlent Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Innlent Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Innlent Fleiri fréttir Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn eitt skipið sekkur á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sjá meira