Erlent

Sýrlendingar bregðast illa við

MYND/AP
Sýrlendingar hafa brugðist illa við samþykkt Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna um að þeir kalli hersveitir sínar heim frá nágrannaríkinu Líbanon. Fjórtán þúsund sýrlenskir hermenn eru í Líbanon og eru margir íbúar landsins ósáttir við dvöl þeirra sem þeir segja jafngilda hernámi. Sýrlendingar segja að samþykktin auki spennuna í þessum heimshluta og geri því hið mesta ógagn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×