Fleiri gætu tengst málinu 8. febrúar 2005 00:01
Lögregla útilokar ekki að fleiri menn tengist umfangsmiklu amfetamínssmygli hingað til lands. Tveir menn eru í haldi lögreglu vegna smygls á fjórum kílóum af amfetamíni. Annar þeirra smyglaði efninu til landsins en lögreglan náði hinum á hlaupum í Vesturbæ Reykjavíkur tveimur dögum síðar. Fyrir tæpum tveimur vikum kom þýskur karlmaður á þrítugsaldri hingað til lands með vél frá Frankfurt. Samkvæmt upplýsingum lögreglu fundust fjögur kíló af amfetamíni á honum við hefðbundið eftirlit. Hann var þegar handtekinn og segir lögregla að hann hafi reynst mjög samvinnufús við yfirheyrslur. Sú samvinna leiddi til þess að tveimur dögum síðar var íslenskur karlmaður handtekinn í Vesturbæ Reykjavíkur. Lögregla hafði upp á honum en hann reyndi að komast undan á bíl. Þegar á eftirförina leið stöðvaði maðurinn bílinn og hljóp af stað með lögreglumenn á eftir sér. Þeir hlupu manninn uppi og handtóku hann. Þjóðverjinn var úrskurðaður í þriggja vikna gæsluvarðhald sem rennur út í næstu viku en Íslendingurinn var úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald og rennur það út síðar í vikunni. Grunur leikur á að Þjóðverjinn hafi verið burðardýr en Íslendingurinn fjármagnað kaupin og ætlað að annast sölu efnanna og dreifingu hér á landi. Lögregla útilokar ekki að fleiri tengist málinu og verði handteknir á næstu dögum, en verst frekari frétta af rannsókn málsins. Ekki er vitað til þess að Þjóðverjinn hafi komið hingað til lands áður en Íslendingurinn hefur lítillega komið við sögu lögreglunnar áður.
Fréttir Innlent Lög og regla Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Fleiri fréttir Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Sjá meira