Erlent

Meirihlutinn sá sami

Nýjustu skoðanakannanir Gallups benda til þess að þingmeirihluti hægri stjórnar Anders Fogh Rassmussens verði nákvæmlega sá sami eftir kosningar og hann er í dag, eða 98 sæti gegn 77 sætum stjórnarandstöðunnar. Engu að síður benda kannanir til þess að stærstu flokkar beggja blokka tapi fylgi en að minni flokkarnir bæti við sig. Hins vegar virðist minni áhugi á þessum kosningum en þeim síðustu fyrir fjórum árum. Á hádegi í dag höfðu rúm 22 prósent kosið en í síðustu kosningum hafði fjórðungur manna greitt atkvæði á hádegi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×