Erlent

Íranar og Sýrlendingar samstíga

Íranar og Sýrlendingar ætla að mynda bandalag gegn hverjum þeim sem ógnar þjóðunum tveimur. Bandaríkjamenn hafa undanfarið lýst yfir óánægju með stjórnarhætti í löndunum og er talið að yfirlýsingin nú sé andsvar þjóðanna við ummælum Bandaríkjamanna undanfarið. Forsætisráðherra Sýrlands og aðstoðarforsætisráðherra Írans funduðu í dag og var niðurstaða fundarins sú að löndin myndu styðja hvort annað opinberlega gegn þeirri vá sem að þeim beindist um þessar mundir.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×