Erlent

Sharon líklega ekki ákærður

Dómsmálaráðherra Ísraels mun líklega ekki ákæra Ariel Sharon vegna meintrar fjármálaspillingar frá árinu 1999. Þetta sögðu heimildarmenn innan dómsmálaráðuneytis Ísraela í morgun. Rannsókn málsins hefur staðið yfir í þrjú ár og að sögn heimildarmannanna er jafnvel líklegt að tilkynnt verði í dag að Sharon verði ekki ákærður. Hins vegar er talið líklegt að sonur Sharons verði ákærður fyrir ólöglega fjármögnun í kosningabaráttu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×