Erlent

Leita að nýjum yfirmanni

Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, segir leitað logandi ljósi að nýjum yfirmanni flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna en Hollendingurinn Ruub Lubbers sagði embættinu af sér um helgina vegna ásakana um kynferðislega áreitni. Enginn hefur enn sem komið er verið nefndur til sögunnar en hingað til hafa yfirmenn stofnunarinnar komið frá þeim löndum sem veita mestu fé til hennar. Nú er hins vegar talið líklegt að leitað verði víðar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×