Erlent

Stríðsöxin grafin á NATO-fundinum

Evrópuþjóðir og Bandaríkin grófu stríðsöxina á táknrænan hátt í dag þegar samstaða náðist meðal leiðtoga Atlantshafsbandalagsins um að NATO-ríkin tækju að sér að þjálfa öryggissveitir í Írak. Framlag Íslands felst í tólf milljóna króna stuðningi. Það voru glaðhlakkalegir NATO-leiðtogar sem stilltu sér upp fyrir framan myndavélarnar í höfuðstöðvum Atlantshafsbandalagsins í morgun enda kannski ástæða til; þíða er komin í innri samskipti bandalagsins og menn á nýjan leik farnir að tala saman og vinna saman. Fréttaskýrendur segja að samskiptin hafi ekki verið svona góð á milli Evrópu og Bandaríkjanna í mörg ár. Reyndar segi það minnst um það hversu gott sambandið er einmitt núna, en mun meira um það hversu súrt það var í kjölfar Íraksstríðsins. George Bush sagðist skilja að Íraksstríðið hafi skapraunað mörgum Evrópuþjóðum. Lykilatriðið núna væri hins vegar að leggja það til hliðar og einbeita sér að því að hjálpa hinu nýja lýðræði að ná árangri. Samstaða náðist á fundinum í dag um að öll 26 NATO-ríkin muni koma að því að þjálfa öryggissveitir í Írak, hvort sem það verður gert innan Íraks eða utan. Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra sat fundinn fyrir Íslands hönd og segir að íslensk stjórnvöld muni leggja fé í sérstakan sjóð til að hjálpa til við þjálfunina. Hann segir að það hafi einnig verið samþykkt að halda því opnu að NATO þjálfi öryggissveitir Palestínumanna og sendi jafnvel friðargæsluliða til að hjálpa til við að halda friðinn þegar samningar hafi náðst á milli Ísraels og Palestínu. Mjög var fylgst með samskiptum Bush Bandaríkjaforseta og Chiracs Frakklandsforseta á fundinum í dag, enda hafa deilurnar yfir Atlantsála kristallast í þeirra persónum. Halldór segir greinilegt að þeir hafi báðir reynt að sýna fram á að þeir ætluðu sér að vinna saman innan NATO í framtíðinni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×