Erlent

Afsögn fjármálaráðherra Frakklands

Fjármálaráðherra Frakklands, Herve Gaymard, hefur sagt af sér í kjölfar þess að upp komst að hann hafi búið í stærðarinnar lúxushúsi í miðborg Parísar á kostnað ríkisins. Ráðherrann fráfarandi viðurkennir að hafa gert rangt í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér í morgun en franskir fjölmiðlar fá um leið sneið frá honum. Hann segir þá hafa áreitt sig og fjölskyldu sína undanfarið meira en góðu hófi gegni og vegið um leið ómaklega að sér. Ráðherrann staldraði ekki lengi við í franska fjármálaráðuneytinu því hann tók við embættinu í nóvember síðastliðnum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×