Erlent

Berlusconi að draga í land?

Silvio Berlusconi virðist eitthvað vera að draga í land með þá ákvörðun sína að fara með herlið Ítala burt frá Írak í september. Í gær sagði Berlusconi að ekki væri búið að ákveða hvenær herinn færi og það yrði að gerast í góðri sátt við bandamenn landsins. Það væri einungis von sín að hægt væri að hefja brottfluttning strax í september en ekkert hefði verið ákveðið í þeim efnum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×