Innlent

Íraksstríði mótmælt í miðborginni

Um fimm hundruð manns söfnuðust saman á Ingólfstorgi núna klukkan tvö til þess mótmæla innrásinni í Írak og krefjast þess að Bandaríkjastjórn dragi herafla sinn út úr landinu. Í dag eru tvö ár síðan Bandaríkjamenn réðust inn í Írak og er þess minnst með mótmælum víða um heim. Hópurinn gekk síðan í átt að stjórnarráðinu til að afhenda þar formleg mótmæli vegna þátttöku Íslands í þessu stríði.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×