Innlent

Ráðherra hafi beitt þrýstingi

Formaður Sambands íslenskra myndlistarmanna segir úthlutun úr launasjóði myndlistarmanna vera eins faglega og framast má vera. Stjórnin hafi aldrei beitt úthlutunarnefndina nokkrum þrýstingi en það hafi hins vegar ráðherra í ríkisstjórninni gert. Ásmundur Sveinsson var einn þeirra sem ekki átti upp á pallborðið hjá Jónasi frá Hriflu á sínum tíma. Ósagt skal látið hvort hann fékk einhvers konar listamannalaun á sinni tíð en í ljósi þess að fyrirkomulag úthlutunar listamannalauna býður upp á vangaveltur um spillingu, er þá ekki ástæða til að breyta fyrirkomulaginu? Áslaug Thorlacius, formaður Sambands íslenskra myndlistarmanna, segir ekki ástæðu til þess, þetta sé sama fyrirkomulag og viðgangist í fræða- og vísindaheiminum. Þetta kallist jafningjamat og það þyki best. Þeir sem vit hafi á málum skoði umsóknir og fjalli um þær. Áslaug tekur fram að varamaður hafi verið kallaður inn til að fjalla um umsókn sambýliskonu eins nefndarmanna. Hún segir nýja úthlutunarnefnd vera skipaða á hverju ári og sú nefnd komi að hreinu borði, það eigi enginn fyrir fram rétt á starfslaunum. Kvörtun aðstandenda farsæls listamanns eigi áreiðanlega rétt á sér en hún eigi líklega frekar heima hjá heiðurslaunasjóði sem Alþingi úthlutar úr. Áslaug segir fjarri lagi að nefndin hafi verið beitt þrýstingi. Stjórn SÍM skipi margar úthlutunarnefndir og skipti sér ekkert af þeirra störfum eftir það. Hún segist hins vegar vita að úthlutunarnefnd launasjóðs listamanna hafi verið beitt óeðlilegum þrýstingi. Ráðherra í ríkisstjórn Íslands hafi hringt í nefndina og talað máli einhvers umsækjanda sem hún viti ekki hver var. Nefndin hafi ekki látið þann þrýsting hafa áhrif á störf sín en hún viti að sami ráðherra hafi hringt eftir á til þess að hala í land með þetta og segja að hann hefði í raun ekki verið að beita þrýstingi. Þetta finnist henni vera alvarlegur þrýstingur. Aðspurð hvaða ráðherra þetta hafi verið segir Áslaug að það hafi verið landbúnaðarráðherra.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×