Innlent

Kanarnir ættu að líta sér nær

"Ég held að Kanarnir og Ísraelsmenn ættu að líta sér nær," segir Sigurjón Þórðarson, þingmaður Frjálslynda flokksins, um gagnrýni erlendra dagblaða og Wiesenthal-stofnunarinnar á íslensk stjórnvöld. "Þessir aðilar ættu að muna ódæðisverkin í Guantanamo og Palestínu." Sigurjón telur að verið sé að búa til úlfalda úr mýflugu. "Það verður að taka tillit til þess að maðurinn er búinn að vera í einangrun mánuðum saman og var undir pressu á blaðamannafundi. Honum hefur kannski hlaupið of mikið kapp í kinn en ég fæ ekki séð að hann sé að breiða út kynþáttahatur."



Fleiri fréttir

Sjá meira


×