Innlent

Er sjúkur maður

"Það er þó einum fanganum færra núna sem haldið er án dóms og laga fyrir tilstuðlan Bandaríkjamanna," sagði Steingrímur J. Sigfússon, þingmaður Vinstri grænna, en hann greiddi tillögunni sitt atkvæði. "Þetta er í mínum huga mannúðarmál fyrst og fremst og menn ættu að taka því með fyrirvara þegar sjúkur maður eins og Fischer er tjáir sig um þessa hluti. Þá vakna spurningar um siðferðilega ábyrgð fjölmiðla sem velja að birta slík ummæli, sem auðvitað eru óafsakanleg ef þau eru tekin alvarlega. En hvað vill Washington Post gera, loka hann inni?"



Fleiri fréttir

Sjá meira


×