Innlent

Rússar stöðva framkvæmdir

Misskilningur rússneskra ráðamanna í Moskvu olli því að sex fjögurra metra stálstöplar voru reistir á grunni nýrrar byggingar í bakgarði rússneska sendiráðsins í trássi við beiðni borgaryfirvalda um að stöðva allar framkvæmdir á lóðinni. Þetta segir Andrei Melnikov, sendiráðsfulltrúi sendiráðs Rússlands á Íslandi. Rússneska sendiráðið hóf byggingu 400 fermetra húsnæðis sem er sjö metra hátt á lóðinni fyrir aftan sendiráð Rússlands í Garðarstræti 33 án þess að sækja um tilskilin byggingarleyfi hjá Reykjavíkurborg. Í kjölfar athugasemda frá nágrönnum í desember var sendiráðinu gert að stöðva byggingarframkvæmdir á meðan unnið er að deiliskipulagi fyrir svæðið, svo afgreiða megi byggingarleyfisumsókn. Melnikov segir að öllum framkvæmdum hafi verið hætt fyrir viku. "Yfirmenn í Moskvu héldu að einhver hluti leyfis hefði fengist hjá borgaryfirvöldum og því voru þessir stálstöplar reistir. Um leið og við komumst að því að svo var ekki var öll vinna stöðvuð," segir Melnikov. Nágrannar sendiráðsins, sem ekki vildu láta nafns síns getið, sögðu Fréttablaðinu að Rússarnir hefðu unnið sleitulaust á byggingarstaðnum allt frá því í september og að þeir hafi gert meira en að reisa stálstöplana frá því í desember. Melnikov segir að rússnesk yfirvöld hafi staðið í þeirri trú að vandamálið væri fólgið í því byggingin væri of nálægt lóðamörkum. "Borgaryfirvöld óskuðu eftir því að við færðum bygginguna inn á lóðina um að minnsta kosti þrjá metra og að ef svo yrði gert þyrfti sendiráðið ekki að ganga í gegnum svo ítarlega málskynningu. Sendiráðið uppfyllti þessa ósk og færði bygginguna í planinu um 4,9 metra inn í lóðina," segir Melnikov. Hann segir að rússneska sendiráðið vilji fyrir alla muni eiga góð samskipti við nágranna. "Við viljum búa í sátt við þá og eigum von á því að málamiðlunarlausn verði fundin," segir hann. Skipulags- og byggingarnefnd tekur málið til umfjöllunar á miðvikudag.
Skúrar undir byggingarefni. Reistir hafa verið fjölmargir skúrar í baklóð sendiráðsins í Garðastræti 33 og 35. Borgaryfirvöld hafa fengið þær skýringar að skúrarnir hýsi byggingarefni.MYND/GVA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×