Innlent

Vilja skilja á milli embættismanna

Skilja ber á milli pólitískra og faglegra embættismanna í stjórnarráðinu að mati sex þingmanna Samfylkingarinnar. Lögð hefur verið fram tillaga að þingsályktun um málið en flutningsmenn telja að Ísland hafi sérstöðu hvað varðar pólitískar embættisveitingar í ráðuneytum. Bent er á að það komi skýrt fram í sögu stjórnarráðsins að skilin milli pólitískra og faglega ráðinna embættismanna hafi alltaf verið fremur óljós og ráðherrar hafi haft mikil ítök við skipan embættismanna. 1969 var heimilað að ráðherra gæti ráðið sér aðstoðarmann sem hyrfi úr starfi um leið og ráðherrann. Ekki séu þó vísbendingar um að það hafi dregið úr pólitískum embættisveitingum. Rannveig Guðmundsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar og einn flutningsmanna tillögunnar, segir að henni finnist mjög erfitt þegar mjög sterkir pólitískir einstaklingar séu ráðnir inn í æðstu embættti stjórnsýslunnar og svo líði sá tími sem viðkomandi ríkisstjórn sitji og við taki ný ríkisstjórn og ráðherrar erfi þá sem fyrir séu. Mikilvægt sé að traust sé milli manna þegar komið sé inn í ráðuneyti, embættismannavaldið sé sterkt. Þannig segir Rannveig að þótt flokksmennirnir geti verið góðir embættismenn sé vont hversu óljós skilin eru. Hún vill fara sömu leið og í Noregi og Svíþjóð þar sem stjórnmálamenn ráða pólitíiska embættismenn sem hverfa með þeim þegar þeir víkja. Hún segir að fólk verði leiksoppar pólitískra ráðninga í núverandi kerfi, sama hvorum megin veggjar það lendi. Nýlegt dæmi um ráðuneytisstjóra í félagsmálaráðuneytinu sanni það og einnig hafi dyggir flokksmenn verið ráðnir til starfa í fjármálaráðuneytinu og sjávarútvegsráðuneytinu nýlega. Þá eru einnig til ráðuneytisstjórar án ráðuneytis. Rannveig bendir á Björn Friðfinnsson sem hafi verið án ráðuneytis árum saman vegna þess það hentaði ekki þegar hann kom úr leyfi erlendis að hann tæki við sínum störfum í ráðuneyti þar sem nýr flokkur var kominn við völd.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×