Innlent

Össur hefur kosningabaráttuna

Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar, opnar í dag kosningaskrifstofu í Ármúla 40. Össur býður sig fram til formanns Samfylkingarinnar líkt og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir sem opnaði sína kosningaskrifstofu fyrir tæpum mánuði síðan. "Þetta markar formlegt upphaf minnar kosningabaráttu," segir Össur. "Ég hef mína kosningabráttu svona seint því að ég tel að það sé flokknum farsælast að þessi barátta verði stutt." Kosið verður með póstkosningu og verða atkvæðaseðlar sendir út 22. apríl.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×