Innlent

Stjórnarflokkarnir ræða leikskóla

Óformlegar viðræður um gjaldfrjálsa leikskólagöngu fimm ára barna hafa farið fram milli ríkisstjórnarflokkanna. Hjálmar Árnason, þingflokksformaður Framsóknar, segir gjaldfrjálsan leikskóla lið í fjölskyldustefnu flokksins frá síðasta flokksþingi. Eftir eigi að útfæra hvort öllum börnum eða aðeins hluta þeirra verði í framtíðinni tryggður gjaldfrjáls leikskóli. "Það þarf að skoða út frá uppeldislegum sjónarmiðum með hagsmuni barnanna að leiðarljósi," segir Hjálmar. "Þegar til þess kemur þarf að ræða tekjuskiptingu ríkis og sveitarfélaga."



Fleiri fréttir

Sjá meira


×