Innlent

Aflýsir fundi með Davíð

Robert B. Zoellick, varautanríkisráðherra Bandaríkjanna, aflýsti fundi með Davíð Oddssyni utanríkisráðherra, sem fram átti að fara í gær. Zoellick ætlaði að stoppa þrjár klukkustundir hér á landi á leið sinni frá Evrópu vestur um haf, en hann og Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, eru í mikilli heimsóknarferð til allra höfuðborga NATO-ríkjanna um þessar mundir. Ástæðan sem Zoellick gaf er sú, að vegna mikils hliðarvinds treysti flugmaður hans ekki á að hann næðði til Washington á þeim tíma sem fyrirhugað var í gærkvöldi. Ekki hefur verið boðað til nýs fundar en vonast er til þess að Zoellick komi á fund Davíðs að tveimur vikum liðnum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×