Innlent

Davíð lagður inn

Davíð Oddsson utanríkisráðherra leggst inn á Landspítala - Háskólasjúkrahús í dag til áður ákveðinnar eftirmeðferðar vegna þeirra sjúkdóma sem meðhöndlaðir voru þar sl. sumar og haust. Þetta kemur fram í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu. Eins og kunnugt er var utanríkisráðherra skorinn upp vegna krabbameins á síðasta ári. Ráðherrann verður fáeina daga á sjúkrahúsinu og er eftir hvíld á heimili sínu væntanlegur aftur til fullra starfa eftir 9-10 daga.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×