Landssímamálið í Hæstarétti 13. apríl 2005 00:01 "
Heimskuleg greiðasemi" Sveinbjörn Kristjánssonar fyrrum aðalféhirðis Símans varð til þess að ríflega 260 milljónir hurfu úr rekstrareikningum Símans án þess að eftir var tekið. Kom það fram í Hæstarétti í gær við dómtöku Landssímamálsins þar sem Kristján Ragnar Kristjánsson, Árni Þór Vigfússon og Ragnar Orri Benediktsson freistuðu þess að fá fangelsisdómum úr héraði hnekkt. Ríkissaksóknari, Bogi Nilsson, rakti hvernig þeir félagar hafi mátt vera ljóst að Sveinbjörn stæði að fjárdrætti og því væru þeir meðsekir. Hann lagði áherslu á að þeir félagar Kristján og Árni Þór beri jafna ábyrgð á um 160 milljóna fjárdrætti frá Símanum þar sem þeir hafi ekki gert neinn greinarmun á persónulegum fjármunum sínum og sín á milli og fyrirtækis þeirra, Alvöru lífsins. Fjármál þeirra hafi verið svo samofin að skattaskýslur þeirra, sem Kristján vann, hafi verið nær samhljóða fyrir árið 2001. Héraðsdómur hafi ákveðið að reka málin sem eina heild og dæmt á þeim grundvelli. Ríkissaksóknari vill að Hæstiréttur geri það einnig en verjendurnir ekki. @.mfyr:Ein maður, ein sál, ein vitund Verjandi Árna Þórs, Gestur Einarsson, gagnrýndi að héraðsdómur hafi litið þá félaga sem eina heild og sagði það alvarlegan annmarka á dómnum. Árni Þór og Kristján væru ekki einn maður með eina sál og eina vitund. Árni Þór hafi ekki vitað af fjársvikunum. Hann hafi talið að lánin frá Símanum væru lægri enda hafi hann ekki komið að fjármálum fyrirtækja þeirra félaga. Kristján hafi séð um öll hans fjármál, jafnvel einkareikninga hans. Verjandinn vill að verði Árni Þór ekki sýknaður beri að ómerkja dóminn og senda hann aftur í hérað því dómsmeðferðin hafi verið óréttmæt. Verði hann sakfelldur eigi að skilorðsbinda dóminn þar sem Árni hafði hreina sakaskrá. Hann sé virtur innan síns viðskiptageira, sem sjáist á því að hann hafi verið ráðinn til starfa hjá fjölmiðlasamsteypunni 365. Ríkissaksóknari taldi hins vegar upp dæmi sem hann taldi sanna að Árni vissi sitthvað um fjárhagstöðu fyrirtækjanna. Kristján hafi sagt lögreglu að hann og Árni Þór hafi rætt fjármálin lauslega annað slagið enda með sameiginlega skrifstofu. "Ég tel að hann hafi verið meðvitaður um þetta og eflaust margt annað," las ríkissaksóknari upp úr vitnaleiðslum yfir Kristjáni. @.mfyr:Vildi skerf af kökunni Verjandi Kristjáns Ragnars, Ásgeir Þór Árnason, sagði dómarar í héraði hafa yfirfært eigin þekkingu á viðskiptum yfir á þekkingu þeirra Kristjáns og Árna Þórs þegar þeir dæmdu þá í tveggja ára fangelsi. Það hafi verið óréttlátt. Kristján hafi vitað að Síminn stóð í stórfelldri lánastarfsemi. Honum hafi því ekki þótt óeðlilegt að Síminn vildi fjárfesta í Skjá einum. Hann hafi viljað endurgreiða lánið og því sé ekki hægt að dæma hann fyrir auðgunarbrot. Verjandinn sagði Kristján hafa verið grunlausan um fjársvikin þar til hann hafi verið boðaður á fund skattrannsóknarstjóra í maí fyrir tveimur árum. Í kjöfarið hafi hann hringt í bróður sinn, Sveinbjörn, sem þá hafi sagt honum að féð væri illa fengið. Kristján hafi þá haft samband við löggiltan endurskoðanda og þeir í sameiningu bókað fund með forstjóa Símans með það í huga að greiða féð til baka. Kristján hafi ekki getað talið að féð væri annað en löglegt þar sem það kom í 24 bankafærslum á tíu mánaða tímabili auk 20 milljóna færslu nokkrum mánuðum síðar. Milljónirnar sem komu frá Símanum séu ekki stórkostlega háar þegar horft sé til þess að velta fyrirtækisins hafi verið mikil, viðskiptalífið blómlegt, önnur fyrirtæki hafi lagt allt að 80 milljónir í Skjá einn og þeir hafi haft um 100 starfsmenn. Fleiri fyrirtæki hafi viljað vera með í ævintýrinu. @.mfyr:Síminn stóð sig ekki Verjandi Kristjáns sagði ótrúlegt að Síminn hafi ekki tekið eftir fjármununum sem hurfu úr rekstrinum. Samt hafi fjárdráttur Sveinbjörn náð yfir áramót. Ekkert alvöru fyrirtæki léti slíka fjármuni frá sér fara án þess að eftir væri tekið. Fram kom í máli verjandans að Síminn hafi lánað mörg hundruð milljónir til fyrirtækja um allt land. KEA, Ingvar Helgason, SÍF, Hraðfrystihús Þórshafnar og Bifreiðar og Landbúnaðarvélar hafi verið meðal fyrirtækja sem fengu lán. Hann nefndi að fyrir héraðsdómi hafi forstjóri Símans, Brynjólfur Bjarnason, svarað því hvort fjárfestingarnar borgaði sig: "Það liggur fyrir að kaup Landssímans hafa ekki skilað arði," svaraði Brynjólfur þá. Verjandi Árna Þórs impraði einnig á málinu og sagði: "Landssíminn gerir lítið úr því að það hann hafi staðið í lánveitingum á þessum tíma, en það gerði hann samt." @.mfyr:Ragnar Orri í öðrum málum Verjandi Ragnars Orra, Steinunn Guðbjartsdóttir, sagði átta mánaða dóm Ragnars, móðurbróðir Kristjáns og Sveinbjörns, of strangan miðað við tveggja ára dóm félaganna af Skjánum. Hann gagnrýndi einnig að menntun Ragnars hafi ekki hlotið umræðu eins og þeirra Kristjáns og Árna Þórs. Ragnar hafi hvorki lokið framhaldsnámi í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ né námi sem hann hóf í Bretlandi. Hann hafi verið rétt um tvítugt og gegnt öllum skipunum Sveinbjöns, því hann hafi litið upp til hans. Verjandinn sagði Ragnar þó hafa rekið augun í að 300 þúsund króna laun sem hann hafi fengið á reikning sinn fyrir rekstur Priksins væru greidd af Símanum. Hann hafi spurt frænda sinn og fengið þá skýringu að hann hefði lánafyrirgreiðslu hjá Símanum og af hagræði greiddi hann beint af reikningnum. Á það hafi Ragnar fallist enda ánægður með að fá launin greidd. Ragnar sá einnig um framsal á fimmtán tékkum að upphæð 22 milljónum króna og um persónulegar greiðslur fyrir Sveinbjörn. Verjandinn segir hann hafa ráðstafað þeim eftir ráðum Sveinbjörns. Hann hafi ekki haft hag af peningunum eins og Kristján og Árni Þór í þeirra málum. Ríkissaksóknari sagði hins vegar Ragnar bera sína ábyrgð. Hann hafi verið í stjórn tveggja fyrirtækja sem komu að fjárdrættinum. Hann hafi tekið við stórum fjárhæðum án þess að gera grein fyrir þeim í bókhaldi: "Hann vildi bara launin sín. Minna máli skipti hvernig peningarnir voru tilkomnir," sagði ríkissaksóknari. Við það væri ekki hægt að una.
Fréttir Innlent Lög og regla Mest lesið Sautján ára piltur lést í bílslysi á Miklubraut Innlent Slysið á Miklubraut „mjög alvarlegt“ og óskað eftir vitnum Innlent Slys á Miklubraut: Einn fluttur á sjúkrahús og einn bíll tjónaður Innlent Níu Íslendingar um borð í flugvél sem hafnaði úti á grasi Innlent Valgarð Már er látinn Innlent Biggi lögga lamaður eftir að ofbeldi var borið upp á hann Innlent Trump birti myndband af Obama-hjónum sem öpum Erlent Mynd af Dorrit með Mette-Marit og Maxwell vekur athygli í Noregi Erlent Fótbrot, kúlur á höfði og bíll á vegriði Innlent Vægur dómur fyrir að áreita átta stúlkur: „Mér er slétt sama um aldursmun“ Innlent Fleiri fréttir „Mikilvægt að geyma þetta ekki inni í sér“ Banaslys á Miklubraut og brotið leikskólakerfi LHÍ ríður á vaðið: Erlendir nemendur greiða milljónir vegna fyrirhugaðrar lagabreytingar Valgarð Már er látinn Starfsmenn Bifrastar hreinsaðir af öllum sökum Yfir áttatíu milljónir í starfslokasamninga og þar af þrettán vegna starfsloka Páls Jóhann Páll fagnar því að ummæli hans séu rifjuð upp Tyrkir vilja sendiráð á Íslandi Fótbrot, kúlur á höfði og bíll á vegriði Sautján ára piltur lést í bílslysi á Miklubraut Opna dyr sínar vegna slyssins á Miklubraut Bakkakot rannsakað og mönnunum boðin áfallaaðstoð „Eftirlit sveitarfélaga með fósturbörnum er brotið“ Níu Íslendingar um borð í flugvél sem hafnaði úti á grasi Rannsókn áfram í fullum gangi þrátt fyrir úrskurðina Fullyrðir að eftirlit með fósturbörnum sé brotið Ekki sé lögboðið eftirlit með fimmtungi fósturbarna Biggi lögga lamaður eftir að ofbeldi var borið upp á hann Vægur dómur fyrir að áreita átta stúlkur: „Mér er slétt sama um aldursmun“ Ragnheiður nýr forseti LUF Snjór á Hellisheiðinni Risa framkvæmd við Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi Slysið á Miklubraut „mjög alvarlegt“ og óskað eftir vitnum „Flókið að koma saman framboði með fjóra flokka“ Ölvun og þjófnaðir Sendi rangt skjal á dómarann og nú þarf að flytja málið upp á nýtt Slys á Miklubraut: Einn fluttur á sjúkrahús og einn bíll tjónaður „Gamlar“ kempur kenndu bridge á Laugarvatni Mátti ekki kalla Samtökin '78 „hagsmunasamtök barnaníðinga“ Aldrei eins lítið í læknum og fuglunum er tekið að fækka Sjá meira