Innlent

Mun bjóða sig fram

Ágúst Ólafur Ágústsson mun formlega tilkynna í dag að hann muni gefa kost á sér sem varaformaður Samfylkingar á næsta landsfundi. Fyrr í vikunni hvatti framkvæmdastjórn Ungra jafnaðarmanna, ungliðahreyfingar Samfylkingarinnar, Ágúst Ólaf til að bjóða sig fram og hafði hann þá ekki gert það upp við sig hvort hann ætlaði í framboð, en Fréttablaðið hefur heimildir fyrir því að hann hafi hringt í vel flesta, ef ekki alla þingmenn Samfylkingar í gær til að afla sér stuðnings í varaformannsembættið. Útvarpið sagði frá því í gær að skorað hafi verið á Jóhönnu Sigurðardóttur að bjóða sig einnig fram. Nokkrir þingmenn flokksins höfðu á því orð í gær að hún væri alvarlega að íhuga framboð.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×