Innlent

Össur og Ingibjörg á Akureyri

Össur Skarphéðinsson og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir eru á meðal ræðumanna á opnum fundi um stjórnmál unga fólksins á Akureyri í hádeginu. Fundurinn ber yfirskriftina Ekki gera eins og mamma þín segir þér! - klár tilvísun í þá félaga Karíus og Baktus. Þetta er í fyrsta sinn sem þau Ingibjörg og Össur mæta á sameiginlegan fund frá því að baráttan um formannsembættið í Samfylkingunni tók að harðna. Kjörskrá var lokað í gær og er talið að félagsmönnum í flokknum hafi fjölgað um allt að þriðjung síðustu daga.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×