Innlent

Tími Ingibjargar ekki kominn

Það er ekkert sem bendir til þess að tími Ingibjargar Sólrúnar muni ekki koma einhvern tíma en það verður þó að bíða betri tíma. Þetta sagði Össur Skarphéðinsson á opnum fundi um stjórnmál unga fólksins sem haldinn var fyrir norðan í dag undir yfirskriftinni Ekki gera eins og mamma þín segir þér. Þá sagðist Össur sjálfur vera best til þess fallinn að leiða flokkinn í næstu kosningum. Össur gaf lítið fyrir þann orðróm að fjöldi sjálfstæðismanna hefði skráð sig í flokkinn til þess eins að kjósa hann í þeirri trú að flokkurinn fái minna fylgi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×