Erlent

Afsögn Berlusconi?

Ítalska stjórnin virðist vera að falla. Silvio Berlusconi forsætisráðherra fundar með Carlo Azeglio Ciampi forseta í dag og tilkynnir þar hvort hann telji stjórn sína enn hafa meirihluta á þingi eða hvort hann hyggist segja af sér. Ef flokkur kristilegra demókrata stendur við þá ákvörðun sína að segja skilið við ríkisstjórnina, þá verður væntanlega boðað til kosninga bráðlega, ári á undan áætlun.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×