Karlar ýkja - konur segja ekki frá 19. apríl 2005 00:01
Konur sem tilheyra hvíta kynstofninum eiga fleiri elskhuga að jafnaði en konur af afrískum uppruna. Svartir karlar eiga að meðaltali níu elskhuga á lífsleiðinni. Hvítir karlar eru ekki eins umsvifamiklir því þeir eiga að meðaltali sex ástkonur, indverskir karlar láta sér duga tvær ástkonur og pakistanskir karlar reka lestina en þeir eiga oftast bara eina konu. Þessar fullyrðingar eru byggðar á nýlegri rannsókn sem gerð var á kynlífsvenjum meðal mismunandi þjóðernishópa í Bretlandi. Ríflega tólf þúsund karlar og konur á aldrinum 16 til 44 ára tóku þátt í rannsókninni og svöruðu ítarlega spurningum um eigin kynlífshegðun. Meðal annars kom fram að svartir karlar viðurkenndu oftast að hafa fengið kynsjúkdóma og virðist sem þeir lifi hvað óöruggustu kynlífi og séu fúsastir að greiða fyrir það. Hvítar konur eiga að jafnaði fimm elskhuga, svartar konur frá Karíbahafinu fjóra, konur frá Afríku þrjá og indverskar og pakistanskar einn hver um sig. Meðalaldur karla þegar þeir missa sveindóminn var 15 hjá þeim úr Karíbahafinu, 17 hjá hvítum og svörtum frá Afríku og 20 hjá indverskum og pakistönskum. Hvítar konur missa meydóminn að jafnaði um 17 ára aldur og sama gera stallsystur þeirra í Karíbahafi. Átján ára missa stúlkur af afrískum uppruna meydóminn, 21 árs á Indlandi og 22 ára í Pakistan. Sé allt tekið saman virðist sem karlar eigi að meðaltali sex fasta bólfélaga á lífsleiðinni en konur fjóra. Dr. Fenton hjá University College London, sem stýrði rannsókninni, er einhvern veginn ekki sannfærður um að þetta sé rétt -- enda sé það háttur karla að ýkja í þessum efnum og kvenna að draga frekar úr.
Heilsa Mest lesið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Menning Carla Jeffery látin 33 ára að aldri Bíó og sjónvarp Greindu frá dánarmeini Tim Curry Lífið Gloria Steinem er látin Lífið Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Lífið Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Lífið Öskrandi nýnemar tolleraðir og busaballið handan við hornið Lífið Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Lífið Fleiri fréttir „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira