Innlent

Sumargjöf til þingmanna

"Þarna vorum við að minna á að á Alþingi liggja fyrir tvær þingsályktunartillögur um stækkun friðlandsins í Þjórsárverum," segir Tryggvi Felixson, framkvæmdastjóri Landverndar. Samtökin afhentu þingmönnum sumargjöf í gær á Austurvelli í Reykjavík en gjöfin var geisladiskur með fjölmörgum myndum úr Þjórsárverum. Með þessu vonast samtökin til að tillögur þær er liggja fyrir þinginu komist á rekspöl en þar hafa þær legið um allnokkurn tíma. Tryggvi segir að myndirnar ættu að auðvelda þeim sem ekki hafa komist í Þjórsárver og skoðað svæðið með eigin augum átta sig á því hvaða náttúruperlu um er að ræða.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×